Þú ert hér > Forsíða > Fréttir

Fréttir

7.3.2010 16:47:25
Útkall F3>grænn Leit að björgunarbát norður af Sandgerði
Enginn hætta á ferð.

Rétt fyrir klukkan 10 í morgun var björgunarsveitin Sigurvon kölluð út til leitar að gúmmíbjörgunarbát norðu af Sandgerði sem losnað hafði af togskipinu Hring SH 153 frá Grundarfirði.
Ekki er vitað nákvæmlega hvenar báturinn losnaði af Hring, en neyðarsendir úr björgunarbátnum fór að senda frá sér neyðarmerki eftir að báturinn sprakk upp í sjónum og hófu starfsmenn landhelgisgæslu Íslands strax eftirgrennslu að bátnum og var björgunarsveitin Sigurvon kölluð út í kjölfarið á útkall F3>grænum forgangi þar sem að enginn hætta var á ferð.


Hringur SH 153 mynd er í eigu Guðmundar St Valdimarsonar

Sigurvon sendi stax út tvo tveggja manna hópar til leitar í fjörunni og stóð hún ekki lengi þar sem að annar hópurinn kom fljótt auga á bátinn á eyri fyrir neðan Kirkjubólsvöll.
Eftir stutta leit tók við önnur leit af neyðarsendi úr björgunarbátnum til að slökkva á honum og í framhaldi að koma bátnum úr fjörunni og til Sandgerðis.
Þar sem ekki var hægt að fara á bíl niður í fjöruna þurftu björgunarmenn að draga bátinn á handafli um 100 metra í stórgrýtri fjörunni í átt að golfvellinum.


Björgunarmenn að draga bátinn úr fjörunni


Verið að flytja bátinn yfir golfvöllinn á traktor frá golfklúbbnum.

Þegar þeirri vinnu var lokið tók við vinna við að koma bátnum úr fjörunni og fékk björgunarsveitin afnot að traktorsgröfu frá Golfklúbbi Sandgerði til að flytja bátinn úr fjörunni og upp að bíl og gekk það mjög vel fyrir sig, og var báturinn komin í hús hjá Sigurvon um 15°°.

 

Myndir: Sigurvon / sigurvon.is
Mynd af Hring SH 153 er í eigu Guðmundar St Valdimarssonar og er hún birt með leyfi eiganda



Prentvæn útgáfa

Til baka